Entry: páskar Friday, March 21, 2008



veit ekki hvað er í gangi með þetta veður - það snjóaði í dag! ég sem var alveg tilbúin í vor og bara sumar baby, bring it on! en nei nei.... snjókoma og ískaldur vindur!!!

en já, páskar. gleðilega páska. ég er spennt. erla vinkona sendi mér föt sem ég gleymdi síðast á íslandi og mig grunar, bara grunar, að það fylgi pakkanum eitthvað meira. þetta er sem sagt hápunktur páskanna. að bíða eftir pakkanum. smá vesen því buzzerinn við hliðið virkar ekki svo kúturinn sem keyrir fattar ekki að hringja í mig. þannig á morgun, á morgun verður ævintýri. þarf að taka strætó út í rassgat að finna höfuðstöðvar DHL. spennó. ég ætla með nesti :)

klippti annars á mér hárið í vikunni - og já ég klippti það sjálf - setti smá brúnkukrem á nebbann og svei mér ef brosið er ekki breiðara :) sit núna við kertaljós (hvað er með mig og kertaljós??), borða hráan lax með hvítlauk og soya sósu, drekk Innis & Gunn (uppáhaldsbjórinn minn) og horfi á 'Mona Lisa Smile'. jabb. gleðilega páska indeed :)

   3 comments

Elli
March 23, 2008   09:20 PM PDT
 
Gleðilega páska
Dóra
March 22, 2008   03:41 PM PDT
 

Velkomin í einmanna páskahópinn... Heehehe, ef ég væri ríkur sjómaður þá myndi ég bara koma í heimsókn til þín um páskana. En ég hafði bara efni á að kaupa mér dekurmat og flr kerti því mín voru brunnin upp. Jebb ég elska kerti. Hafðu það gott um helgina og vonandi er eitthvað extra í pakkanum þínum frá Erlu.
Ingibjörg
March 22, 2008   03:09 PM PDT
 
þetta hljómar nú ósköp kósí hjá þér bara! gleðilega páska *smooch*

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments