Entry: hitt og þetta Friday, April 04, 2008



búin að vera pínu upptekin - finna íbúð, flytja, þrífa gömlu, reyna að finna vinnu, skrifa. púff.

það er að koma vor að mér finnst stundum, en svo kemur kuldakast rétt á eftir. búið að vera yndislegt síðustu daga en svo sagði mér lítill fugl að það ætti að snjóa í næstu viku. arg. ég held í tilhugsunina um að í fyrra var orðið nokkuð hlýtt eftir afmælið mitt. það er í lok apríl.

en já, er komin í nýja íbúð og er að leigja með 3 öðrum. herbergið mitt er í rúst en agalega bjart og fallegt. húsið er risa stórt og á æðislegum stað. ég er agalega hamingjusöm með flutningana. nú er bara að finna vinnu til að borga leigu hehe. hef verið að vinna eina og eina vakt á barnum en það dugar skammt þar sem ég er bara auka þar. sótti um vinnu í dag sem mig langar í. krossa fingur :)

hef ákveðið að taka þátt í 10km hlaupi í byrjun maí ! ekki séns ég geti hlaupið það í dag og því er ég að reyna að taka mig á. auka jafnt og þétt. hljóp 5km í vikunni en mig vantar nýja skó - er að drepast í mjöðm og hné í mínum. aldurinn ... aha.


annars er flest við það sama. reyni að horfa fram frekar en aftur, rækta sjálfa mig og vera góð stúlka. jamm og já. þetta gengur allt misvel :)

aftur að skrifum og leita að vinnu .. x

   4 comments

Ingibjörg
April 8, 2008   10:03 PM PDT
 
Já! Koma svo! Er byrjuð aftur að skokka sjálf...kemst ekki 10 km í byrjun maí þó...en það mun allt koma með kalda vatninu... :-)
Elli
April 7, 2008   10:53 AM PDT
 
Kvitt kvitt

kveðja
Elli
Namekarla
April 6, 2008   11:13 PM PDT
 
Hæ varð hugsað til þín , vona að þér gangi vel.
kveðja Karla
Rannveig Bjarnfinnsd.
April 5, 2008   05:29 PM PDT
 
Sæl María Erla.

Aðeins að kíkja við hér hjá þér. Sé að það er mikið búið að vera um að vera hjá þér.

Gangi þér vel í öllu skvís.
Bestu kveðjur úr sveitasælunni á Fróni.
Rannveig

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments